Morgunblaðið - 24.04.1993, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1993
59
HANDKNATTLEIKUR / UNDANURSLIT ISLANDSMOTSINS
Valur áfram
en ÍR spum-
ingarmerki
FYRSTU leikirnir í undanúrslit-
um íslandsmótsins íhand-
knattleik fara fram á mánu-
dagskvöld. Annars vegar
mætast Valur og Selfoss en
hins vegar FH og ÍR. Jóhann
Ingi Gunnarsson, þjálfari
Hauka, spáir Val íslands-
meistaratitlinum, en segir að
ÍR sé spurningarmerki.
Haukar töpuðu í þriðja leik fyrir
Selfossi í átta liða úrslitum
og mátti vart tæpara standa — sig-
urmarkið í framlengingu var dæmt
gilt nokkrum mínútum eftir að leik
lauk í kjölfar fundar eftirlitsdómara
með dómarapari leiksins. „Mikill
kraftur og mikil orka fóru í leikina,
en Selfyssingar hafa tíma fram á
mánudag til að hlaða rafhlöðum-
ar,“ sagði Jóhann Ingi aðspurður
um möguleika Selfoss gegn Val.
„Gísli Felix Bjarnason lék stórt
UM HELGINA
Handknattleikur
Undanúrslit íslandsmótsins:
Kaplakriki: FH-ÍR...................20
Laugardalshöll: Valur - Selfoss.....20
Glíma
Íslandsglíman
Íslandsglíman fer fram í íþróttahúsinu
að Varmá í Mosfellsbæ í dag, laugardag,
og hefst kl. 14.
Knattspyrna
Reykjavíkurmótið
Laugard.: KR-Ármann.................17
Sunnud.: Víkingur-Leiknir...........20
Mánud.: Valur-Þróttur...............20
Litla bikarkeppnin
Sunnudagur:
Grindav.: Grindavík - Haukar........14
Garðab.: Stjarnan-ÍA................14
Keflavík: ÍBK-HK....................14
Selfoss: Selfoss-ÍBV................14
Kópavogur: UBK - Grótta..........12.30
Garður: Víðir-FH....................14
Fimleikar
íslandsmót í tromp-fimleikum
Islandsmótið í trompfimleikum (æfingar
á gólfi, dýnustökk og stökk á trampólíni)
verður haldið í íþróttahúsinu Digranesi í
dag. Keppni 10 til 13 ára hefst kl 10, en
14 ára og eldri kl. 14.
Golf
Síðasta sunnudagsmót tímabilsins í Golf-
heimi verður á morgun en að því loknu kl.
20.30 keppa 30 manns 36 holu keppni og
vær sigurvegarinn utanlandsferð í verðlaun.
Afmælismót Keilis í Hafnarfírði verður á
sunnudaginn - ræst verður út kl. 9. Keppn-
isfyrirkomulag er punktakeppni 7/8 stable-
ford.
Pflukast
íslandsmótið í pílukasti fer fram í Vals-
heimilinu laugar- og sunnudag. keppni hefst
kl. 11 báða dagana, en keppt verður í einl-
iðaleik laugardag og tvíliðaleik sunnudag.
Skráning frá kl. 10-10.45 báða daga.
Borðtennis
Punktamðt borðtennisdeildar Vfkings
verður haldið f TBR-húsinu (stóra salnum)
á morgun, sunnudaginn 25. apríl, og byrjar
kl. 11. Þátttaka tilkynnist í sfma 36862,
51775 (sigurður) eða 25268 (Hilmar).
Félagslíf
Aðalfundur Knattspyrnuþjálfarafélags
Islands
Aðalfundur Knattspymuþjálfarafélags
íslands verður haldinn f kaffiteríu ÍSÍ á
morgun, sunnudag, og hefst kl. 20.
hlutverk í marki Selfoss í tveimur
fyrstu leikjunum og framanaf í
þriðja leiknum, en fjarvera hans
hlýtur að veikja liðið. Selfyssingar
voru almennt frekar sigurstrang-
legri gegn okkur, en nú er hlutverk
þeirra þægilegra. Eins hafa þeir
haft gott tak á Valsmönnum fyrir
utan bikarúrslitaleikinn, en þegar á
heildina er litið eru Valsmenn sigur-
stranglegri og ég spái þeim íslands-
meistaratitlinum. Valur er með
mikla breidd, landsliðsmann í hverri
stöðu og allt verður að ganga upp
hjá Selfossi til að sigra bikarmeist-
arana.“
Jóhann Ingi sagði að viðureign
FH og ÍR væri athyglisverðara
dæmi. „Vegna hefðarinnar á FH
að sigra, en ÍR hefur komið á óvart
og stærsti vandi liðsins er fyrst og
fremst hvort leikmennimir séu
saddir. Spumingin er hvort Brynj-
Morgunblaðið/Sverrir
Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálfari Hauka, á bekknum í þriðja leikn-
um gegn Selfossi. Hann spáir Val íslandsmelstaratitlinum.
ari Kvaran tekst að gera strákana
hungraðri í meira. Sjálfstr'aust leik-
mannanna ætti að vera til staðar,
því árangurinn er ekki tilviljun, og
ef þeir leika eins og að undanförnu'
Valur í Höllina og
ÍR í Austurberg
Bikarmeistarar Vals hafa ákveðið að leikurinn gegn Selfossi á
mánudagskvöld verði í Laugardalshöll og einnig aðrir heimaleikir
í úrslitakeppninni ef til koma. ÍR-ingar ætia líka að skipta um heima-
völl og ieika í íþróttahúsinu Austurbergi en ekki Seljaskóla eins og
verið hefur.
Ástæða félaganna er sú sama. Fleiri áhorfendur komast fyrir í
Laugardalshöll og Austurbergi og er verið að koma á móts við þá.
FOLK
■ PAUL Gascoigne er með verki
í hnénu, sem gaf sig fyrir tveimur
áram, og æfði því ekki með enska
landsliðinu í gær heldur fór í rann-
sókn til sérfræðings. Talsmaður
enska knattspymusambandsins ótt-
ast að Gascoigne geti ekki leikið
gegn Hollendingum í undankeppni
HM á miðvikudag.
■ RONALD Koeman og Berry
van Aerle leika ekki með Hollend-
ingum vegna meiðsla og þá verður
Marco van Basten einnig fjarri
góðu gamni, en hann hefur ekki
náð sér enn.
■ TERRY Phelan, varnarmaður
hjá Manchester City, tognaði á
lærvöðva í leiknum gegn Wimble-
don á miðvikudag og verður því
ekki með írum gegn Dönum í HM
á miðvikudag. Reyndar er óttast
að hann verði frá í sex vikur og
þá missir hann lík aaf leikjunum
gegn Lettlandi og Litháen.
FRJALSAR
Martha önnur
í Puerto Rico
Martha Emstsdóttir, sem æfír
í Bandaríkjunum um þessar
mundir, keppti í átta km götuhlaupi
í Puerto Rico á sunnudaginn.
Bandaríska stúlkan Jody Hawkins
sigraði á 26.37 mínútum, en Martha
náði öðru sæti á 27.09 eftir mikla
keppni við Pauline Konga frá
Kenýa, sem hljóp á 27.12.
Næsta keppni Mörthu verður í
New York á morgun, sunnudag.
og nýta sér hvað þeir eru vel á sig
komnir getur allt gerst. Samt er
reynslan á bandi FH-inga, en þeir
era ekki ósigrandi, þó bókin segi
að Valur og FH leiki til úrslita."
Mm
FOLK
■ STEVE Morrow, hetja Arsenal
á Wembley, sem brotnaði á olnboga
í fagnaðarlátunum eftir að Arsenal
varð deildarbikarmeistari um síðustu
helgi, verður þijá mánuði frá keppni.
Það þurfti að setja átta skrúfur í
bein í olnboganum til að spengja þau
saman.
■ MORROW tók ekki við verð-
launapeningi sínum, en Arsenal hef-
ur óskað eftir við enska knattspymu-
sambandið að það veiti undanþágu
og afhendi honum peningin eftir bik-
arúrslitaleik Arsenal og Sheffield
Wednesday.
■ ANDREAS Limpar, landsliðs-
maður Svía, átti að leika með Arse-
nal á Wembley. Hann meiddist á
æfíngu daginn fyrir leikinn - er
þjálfari félagsins Stevart Hougston
sparkaði í ökkla hans.
■ JOHN Jensen, landsliðsmaður
Danmerkur, lék með Arsenal gegn
Nottingham Forest á miðvikudags-
kvöld. Miklar líkur eru á að Jensen
leiki með félaginu bikarúrslitaleikinn
gegn Sheff. Wed. 15. maí.
URSLIT
Knattspyrna
Evrópukeppni bikarhafa
Antwerpen - Spartak Moskva........3:1
Alex Czemiatynski (37.), Dragan
Jakovljevic (66.), Hans-Peter Lehnhoff®)
(vsp., 78.) - Dmitry Radchenko (10.).
18.000.
Antwerpen vann 3:2 samanlagt.
Parma - Atletico Madrid...........0:1
Sabas (77.). 21.915.
iParma vann fyrri leikinn 2:1 og fer þv!
í úrslit, mætir Antwerpen á Wembley í
London 12. maf.
Evrópukeppni félagsliða
PSG - Juventus....................0:1
Roberto Baggio (76.). 48.500.
■Juventus vann 3:1 samanlagt og mætir
Borussia Dortmund í úrslitum. Fyrri leikur-
inn verður 5. maí en seinni 19. maí.
Litla bikarkeppnin
Haukar - Stjarnan.................0:3
Leifur Geir Hafsteinsson, Friðrik Sæbjörns-
son, K. Irakli.
í A - Grindavík...................3:1
Þórður Guðjónsson 2, Alexander Högnason
Ómar Torfason. Leikurinn fór fram á
grasi sumardaginn fyrsta.
HK - Selfoss......................4:4
Purisevic 3, Ljubicic - Sigurður F. Guð-
mundsson 2, Valgeir Reynisson 2.
ÍBV-ÍBK...........................0:0
Grótta-Víðir......................2:0
Ingólfur Gissurarson, Guðjón Kristinsson.
FH-UBK............................3:0
Hörður Magnússon 2, Andri Marteinsson.
Körfuknattleikur
Norðurlandamót U-18
ísland - Finnland...............85:96
Stig íslands: Brynjar Ólafsson 29, Eiður
Valdimarson 17, Sigurvin Pálsson 14, Kári
Rúnarsson 11, Ásgeir Freyr Guðmundsson
6, Sverrir Sverrisson 5, Guðjón Gylfason 3.
■Finnar eru taldir bestir og sigurstrang-
legastir á mótinu í Danmörku, en ísland
var yfir þar til 10 mínútur voru til leiksloka.
ísland - Danmörk................65:74
ísland - Noregur................62:72
Danmörk - Finnland..............78:81
Danmörk - Noregur...............65:42
Danmörk b - Svíþjóð.............51:81
NBA-deildin Leikir í fyrrinótt:
Portland - Phoenix............114:115
Chicago Detroit...............109:103
■Eftir framlengingu.
Houston - Minnesota...........112:110
SanAntonio - Denver.........131:111
LA Clippers - Seattle.......98 : 100
Leikir aðfaramótt fimmtudags:
Boston - Orlando............126: 98 '
Charlotte - Milwaukee.........119:111
NY Knicks - New Jersey........105: 74
Philadelphia - Miami........107: 97
Washington - Atlanta........98 :119
Indiana - Cleveland.........95 :111
Denver - Dallas...............137:112
Utah - LA Lakers..............113:102
Golden State - Sacramento.....132:105
Íshokkí
Úrslitakeppni NHL-deildarinnar
Buffalo - Boston..................4:3
■Eftir framlengingu. Buffalo leiðir 3:0.
Pittsburgh - New Jersey.........4:3
■ Staðan er 3:0 fyrir Pittsburgh.
Montreal - Quebec................2:1
■Eftir framlengingu. Quebec er 2:1 yfir.
New York Islanders - Washington..4:3
■Eftir framlengingu. New York er 2:1 yfir.
Chicago - St. Louis..............0:2
■SL Louis er 2:0 yfir.
Detroit - Toronto................6:2
■Staðan er 2:0 fyrir Detroit
Calgary - LA Kings...............9:4
■Staðan er jöfn, 1:1.
Vancouver - W'innipeg............3:2
■Vancouver er 2:0 yfir, en það hefur ekki
gerst hjá liðinu í úrslitum síðan 1982.
HM í Þýskalandi
Kanada - Austurríki.......i.....11:0
Finnland - Noregur...............2:0
Bandaríkin - Frakkland...........6:1
Rússland - Sviss.................6:0
SKOTFIMI / BIKARMOT ISLANDS
Hannes þrefaldur meistari
Hannes Tómasson, Skotfélagi
Kópavogs, sigraði í tveimur
greinum á fjórða bikarmóti Skot-
sambands íslands og varð þrefaldur
meistari, þegar öll fjögur bikarmót-
in vora tekin saman.
Hannes fékk 555 stig í loft-
skammbyssu og fékk 60 stig úr 4
mótum. Carl J. Eiríksson varð ann-
ar með 555 stig.
í frjálsri skammbyssu fékk
Hannes 527 stig og 60 samtals, en
Carl 516 stig.
í staðlaðri skammbyssu sigraði
Jónas Hafsteinsson, fékk 542 stig,
en Carl og Hannes 541 hvor. Hann-
es sigraði í samanlögðu. í riffilskot-
fími sigraði Carl, fékk 586 stig, en
Gylfi Ægisson, sem fékk 576 stig,
sigraði samanlagt. Carl missti af
einu móti og þar með af titlinum.
:
BLAA LONIÐ
Opið alla daga
NÁTTÚRUPARADÍS í GRINDA
Sími 92-68526